nilli93
Dec 31
329
14.1%
Elsku hjartans fjölskylda og vinir mínir nær og fjær. Ástarþakkir fyrir allt. Árið 2021 mun ég minnast. Mér þykir vænt um þetta ár. Það gaf mér ómetanlegar minningar sem ég á fyrir mig og enginn getur tekið af mér. Ég útskrifaðist sem Leikari í flokki ótrúlegra listmanna, áskotnaðist mér svo mitt fyrsta hlutverk í kjölfarið við Stundina okkar. Sá á eftir Sóleyju minni til Lissabon þar sem hún spilar fótbolta i vetur. Ég er svo stoltur af þér. Ég fékk að frumsýna La Traviata sem sýningarstjóri með Óperunni.
Sá Vínarborg, Mílanó La Scala Óperuhúsið Sýning: ekki góð Upplifun: Óútskýranleg Leikhús: Meira leikhús hef ekki upplifað lengi. Ég heimsótti svo Sóleyju mína í Portugal þar sem okkar kona var orðin eins og innfædd. “Nei Níels minn - við förum ekki í efri borg þar er ekkert að finna” Lenti ég svo heima 29. Nóvember. 1. Desember rann upp og nældi ég mér svo í Covid í annað sinn;
HJÚKRUNARFRÆÐUR: “Er það Níels?”
NÍElS : “Það er ég” (sagði ég með brosi á vör og vissi í hvað stemmdi)
HJÚKRUNARFRÆÐUR: Ég held að ég hafi hringt í þig í fyrra. Mikið ert þú eitthvað móttækilegur.
NÍElS : Já er það virkilega?
HJÚKRUNARFRÆÐUR: Ert þú ekki bólusettur?
NÍElS : ÉG ? Jújújú - ég er tvívegisbólusettur af Phizer.
HJÚKRUNARFRÆÐUR: Jahérna hér jæja engu að síður ert þú kominn í einangrun. Önnur einangrun og sú fyrsta á árinu var yndisleg. Því sný ég mér að EINUM AF toppi ársins. Ég sá eldgos og var það gaman jújú ekki misskilja mig. En það var ekkert á við það að fara í bólusetningu. Maður lifandi. Ég hef aldrei fengið jafn merkingafullt “Góðan daginn” og þá. Og fylgdi í kjölfarið “Hægri eða vinstri” og svo vissi ég ekki fyrr en öskrað var “LÍNA” á svo öruggan, yfirvegaðan og sannfærandi hátt að heil hersveit heilbrigðisstarfssfólk færðist áfram og bauð góðan daginn. Þetta var falleg stund sem ég á með mömmu minni. Á árinu fékk ég svo að fylgjast með bestu vinum mínum vaxa og dafna sem feður, mæður, leikarar, golfkennarar, leikstjórar myndlistarfólk og alskonar alskonar. Og nú er 31. Desember :) Ástarþakkir fyrir árið og allt liðið vinir mínir. Ég bið að heilsa ykkur hér frá Vestmannaeyjum og hlakka til að ganga inní nýtt gæfuríkt ár með ykkur. Ykkar Níels
nilli93
Dec 31
329
14.1%
Cost:
Manual Stats:
Include in groups:
Products:
