nilli93
Jul 8
228
9.55%
Í dag er dagur sem mér rennur alltaf úr minni en mamma mín minnir mig á og óskar mér til hamingju með þennan dag á hverju ári. 8. Júlí, Dagur Heilags Thibaud. Þessi dagur kemur að sjálfsögðu frá frönsku hliðinni minni. En spurningin er, hver er hinn heilagi Thibaud ? Von að við spyrjum. Þrátt fyrir að prívat og persónulega þekki ég ekki hans heilagleika en þó veit ég að við Thibaud-ar höfum komið víða við í gegnum tíðina.
Einn af okkur var Musteris-riddari á 11. öld, annar fiðluleikari á síðustu öld og svo á ég kolleika sem lék einmitt í sjónvarpsseríunni “La Scene en Plus” á þessari öld. Við erum alskonar og það er gaman að deila þessum degi með þeim. Við frekar uppgröft á þessu nafni, sem ég velti mikið fyrir mér hér einmitt við Sementsverksmiðju Akranes, komst ég að því að nafnið Thibaud er dregið af fornfranska Theobald, sem þýðir djarfur eða hugrakkur. Þegar hugrekki kemur uppí hugan minn, þá er mér hugsað til Mömmu. Því tileinka ég þennan dag 8. Júlí móður minni Helgu Bryndísi Jónsdóttur. Ég held að við Thibaud-ar gætum alveg verið sammála um það.
Til hamingju með daginn nafnar og Mamma.
Ykkar frá sementinu á Akranesi
Níels
nilli93
Jul 8
228
9.55%
Cost:
Manual Stats:
Include in groups:
Products:
